Skilmálar
Skilmálar þessir eiga við um alla þjónustu og vörur keypta á vef Level Up Training.
Skilmálar Level Up Training:
Sunneva Ýr Sigurðardóttir
Kt. 170998-2519
Vættaborgir 66, 112 Reykjavík
sunneva@leveluptraining.is
Réttur til að hætta við pantanir
Level Up Training áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur
Allt efni á heimasíðu Level Up Training og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.
Einstaklingsaðgangur
Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið
Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.
Endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þátttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara.
Eigin ábyrgð
Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá Level Up Training. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá Level Up Training. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá Level Up Training. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónusta hjá Level Up Training.
Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá Level Up Training staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu).
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Level Up Training á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Breytingar
Level Up Training áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.