Tengir þú við að vera SVO peppuð fyrir nýju ári, setja þér helling af markmiðum, mætir á hverjum degi á æfingu og svo eftir nokkrar vikur ertu alveg dottin úr gírnum...?
Það tengja fleiri við þetta en bara þú.
Núna þegar spennan er farin og lífið er orðið "venjulegt" aftur þá fara markmiðin að líta út fyrir að vera erfiðari og það er erfiðara að vinna sig í áttina að þeim.
Hvað varð um hvatninguna?
Hvatning (eða motivation) fylgir nýjum, spennandi hlutum. Þú ert spennt fyrir markmiðinu, nýrri rútínu og öllu sem nýju ári fylgir. Svo undir lok janúar/byrjun febrúar, þegar hlutirnir eru ekki eins nýir lengur, þá dofnar hvatningin, og nú þarftu að treysta á agann til að framkvæma allt sem þú ætlaðir þér.
Ekki gefast upp
Þetta er tíminn sem margir gefast upp, ekki vera ein af þeim! Þessi tilfinning, að hlutirnir séu að verða erfiðari en ekki merki um að þú ættir að hætta. Núna þarftu að mynda þér aga. Þetta er hringrás... Agi -> Árangur -> Hvatning
Hvað get ég gert í þessu?
Fagnaðu litlu sigrunum.
Ekki bíða endalaust eftir að stóra markmiðinu sé náð. Enjoy the process.
Farðu í stuttan göngutúr í staðin fyrir að hreyfa þig ekki neitt.
Það þarf ekki að vera 100% á hverjum degi, suma daga gefurðu 30%, aðra 70%... Það skiptir bara máli að mæta og halda áfram.
Minntu þig á afhverju þú ert að þessu.
Afhverju settiru þér þetta markmið til að byrja með? Afhverju ertu að leggja þetta á þig?
Breyttu hugarfarinu.
Það eru svo margir með þennan allt eða ekkert hugsunarhátt. Það er ekki allt ónýtt ef þú kemst bara 4x í ræktina í vikunni í staðin fyrir 5x. Ef þú kemst ekki 5x, farðu þá 4x. Ekki. Gefast. Upp. Þetta þýðir ekki að þér hafi misheppnast. Þú ferð svo 5x í næstu viku. Stundum er lífið bara þannig að maður þarf að aðlaga hlutina.
Brjóttu stóra markmiðið niður í minni markmið
Litlu markmiðin eru hvernig þú ætlar að ná stóra markmiðinu. Það er ekki nóg að setja sér bara stórt markmið, þú verður að ákveða hvernig þú ætlar að ná því.
Dæmi: Ég ætla að ná 100 kg í hnébeyju
Lítil markmið:
- Ég ætla að finna mér hnébeygju prógram
- Ég ætla að einblína á próteininntöku
- Ég ætla að taka kreatín daglega
- Ég ætla að telja macros
o.s.frv.
Allir þessir litlu hlutir halda þér við.
Koma svo, við ætlum að ná markmiðunum okkar árið 2026!!
