Vertu velkomið 2026!
Ég er ein af þeim sem elska nýtt ár. Ég er smá all in í þessu og geri alltaf vision board fyrir árið, set mér ný markmið og finnst þetta einhvern veginn refreshing...
Árið 2026 ætlum við að setja okkur markmið sem við náum! Takk fyrir!! Og svona ætlum við að fara að því:
Brjóttu markmiðin niður
Taktu stóra markmiðið og brjóttu það niður í nokkur skref sem þú getur gert til að ná markmiðunum. Þegar þú gerir þetta þá markmiðin ekki eins yfirþyrmandi og þú veist hvað þú ætlar að gera til að ná markmiðinu. Það er nefnilega ekki nóg að setja sér markmið, þú verður að ákveða hvernig þú ætlar að ná þeim.
Dæmi um markmið:
Ég ætla að missa 5 kg
Svona ætla ég að gera það:
- Ég ætla að mæta á æfingar 3x í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga (kl. 6:15 fyrir vinnu (því nákvæmara því betra)).
- Ég ætla að skrá mig í macros þjálfun og telja macros og læra hvernig það hentar mér að næra mig til að ná mínum markmiðum.
- Ég ætla að labba meira, þ.e. fara í göngutúr þá daga sem ég mæti ekki á æfingar, sama hvort hann sé stuttur eða langur. Ég ætla líka að taka stigann í staðin fyrir lyftu og leggja bílnum alltaf aðeins lengra frá.
Og svo framvegis...
Vertu consistant
Gerðu samning við sjálfa þig að halda áfram þó svo að hvatningin sé ekki til staðar og hindranir koma upp. Mundu að framfarir og árangur er ekki línulegur og það mun alltaf eitthvað koma uppá, það mun koma bakslag... en það er hvernig þú bregst við sem skilar þér á þann stað sem þú vilt vera á.
Það nennir enginn alltaf, 365 daga á ári. Stundum þarf maður bara að segja 3, 2, 1 og drulla sé af stað.
Einbeittu þér að því að vera consistent en ekki fullkomin.
Mundu eftir því afhverju þú ert að gera þetta
Eða "Find your why"
Afhverju ertu að koma þér í form? Afhverju ertu að vakna fyrr til að mæta á æfingu þegar þú gætir sofið lengur? Afhverju ertu að leggja á þig vinnuna?
Það hafa allir mismunandi ástæður.
Ég skal segja þér nokkrar af mínum:
- Ég vil verða heilbrigð
- Ég vil vera fyrirmynd fyrir dóttur mína
- Mér finnst þetta SVO skemmtilegt
- Þegar ég sé mig sjálfa fyrir mér þá sé ég manneskju sem leggur inn vinnuna, sem hreyfir sig, lyftir þungt, borðar hollt og er hvatning fyrir aðra
- Það er ekkert sem segir meiri hard worker en mössuð stelpa😏
Láttu aðra vita af markmiðunum þínum
Það getur hjálpað til ef t.d. makinn þinn eða vinkona veit hver (sum) markmiðin þín eru, þá geta þau hvatt þig áfram þegar þú þarft á því að halda.
Fagnaðu öllum sigrum
Ef ég held áfram með dæmið hér að ofan um að missa 5 kg, þá getur það tekið tíma. Vertu ánægð þegar 1 kg er farið, vertu ánægð þegar þú passar betur í einhverja flík, vertu ánægð að X þyngd í ræktinni sé orðin auðveldari o.s.frv. Litlir sigrar geta ýtt undir svo mikla hvatningu.
Ég er SVO til í þetta, let's go!!
